Meiri yfirsýn, betri stjórn – lykilatriði fyrir stjórnendur í breyttu landslagi fyrirtækja á komandi árum

Rekstrarumhverfi fyrirtækja er að breytast hratt. Á næstu árum munu margir ferlar og verkefni sem nú eru unnin í teymum handvirkt verða leyst með sjálfvirkni og gervigreind. Í dag geta stjórnendur leitað beint til fólksins síns, fengið stöðuuppfærslur og tekið ákvarðanir í samtali. En þegar verkefni og ferli verða unnin af sjálfvirkum flæðum, gervigreind og samþættum lausnum, breytist hlutverk stjórnenda. Þeir þurfa að geta fylgst með og stjórnað tækninni - ekki bara Sigga og Gunnu eins og í dag – sem þeir treysta auðvitað betur en tækninni til að byrja með.
Þetta gerir aukna yfirsýn og rekjanleika að algjöru lykilatriði fyrir stjórnendur. Það verður ekki í boði að gögn séu á víð og dreif í ólíkum kerfum, að samþykktarferli séu óljós eða að sjálfvirkni virki eins og „black box“ sem enginn skilur. Stjórnendur þurfa að vita hvað tæknin er að gera, hvenær hún framkvæmir aðgerðir og af hverju. Og þeir þurfa að geta gripið inn í - á einfaldan hátt - þegar þess gerist þörf.
Power Platform er safn low-code tóla sem gerir fyrirtækjum kleift að þróa lausnir sem sjálfvirknivæða ferla og verkefni og jafnframt veita stjórnendum fulla yfirsýn og stjórn. Gögn eru sameinuð á einn stað, ferlar verða rekjanlegir og stjórnendur eru alltaf nokkrum smellum frá þeim upplýsingum sem þeir þurfa til að taka upplýstar ákvarðanir:
• Með
Power Apps þróum við viðmót og virkni þar sem stjórnendur geta séð stöðu mála, rýnt niðurstöður, samþykkt aðgerðir eða triggerað flæði – allt á einum stað, í heildstæðri sýn sem fylgist með rekstrinum í rauntíma.
• Með
Power Automate sjálfvirknivæðum við ferla, samþættum lausnir við önnur kerfi og nýtum gervigreind.
• Með Power BI þróum við mælaborð og skýrslur sem sýna allar lykiltölur og mælikvarða rekstursins.
Í nýjum veruleika þar sem tækni og gervigreind taka yfir stóran hluta daglegra verkefna verður þessi yfirsýn og stjórn ekki bara gagnleg – hún verður nauðsynleg.
Ef þú vilt sjá hvernig þetta getur virkað í þínum rekstri, tökum þá samtalið:
hello@impactsolutions.is




Deildu greininni



